Mísógýnía og xenófóbía
Ég finn mig knúinn til að analýsera betur myndina sem sjá má í síðustu færslu. Það hefur nefnilega runnið upp fyrir mér að þarna gerist Ásgeir Runólfsson, oddviti Röskvu, sekur um xenófóbískt og mísógýnískt athæfi. Við sjáum myndir.

Ásgeir hefur hér hendur í hári Yohanns Rogers Roberts Peyron, fransmanns, sem skipar 8. sæti á framboðslista Röskvu til Háskólafundar. Yohann, sem er ekki kunnugt um íslenska siðhætti, telur sig taka þátt í einhvers konar íslenskri hefð og brosir sínu blíðasta. Lítið veit hann um xenófóbískar ástæður þess að Ásgeir togar í hár hans.

Hér togar Ásgeir í hár Þorbjargar Söndru Bakke stjórnmálafræðinema, sem er femínisti og þekkir vel til þeirrar kúgunar sem feðraveldið hefur beitt kvenþjóðina frá örófi alda. Augljóst er að henni mislíkar það og skrækir hún því af gremju.
Á þessu má sjá að Ásgeir oddviti, er ekki aðeins kvenhatari, heldur einnig útlendingahatari, þrátt fyrir að útlendingurinn í þessu tilviki, í einfeldni sinni, geri sér ekki grein fyrir því.

<< Heim