mánudagur, janúar 01, 2007

Gleðilegt ár, gott fólk

Er Egill Helgason endanlega búinn að missa sig í upphafi nýs árs? Í bloggfærslu sem hann skrifar í gær segir hann að fyrirbærið blogg hafi verið fundið upp árið 2005.

Svo segist hann vorkenna mér og öllum öðrum sem vinna á fríblöðum.

Svo segir hann að Björgólfsfeðgar og topparnir hjá KB séu gráðugir og heimskir (meiðyrði?).

Svo segir hann að 'ómarisminn', Andri Snær og fleiri vilji ekki hafa upplýst hús og götur vegna þess að þeir voru á móti Kárahnjúkavirkjun (gerir sér líklega ekki grein fyrir því að Búrfellsvirkjun ein nægir til að veita rafmagn til heimilisnota á öllu landinu).

Af hverju fær þessi karlremba að delara frjáls í sjónvarpi og á Vísi?