föstudagur, janúar 05, 2007

Annáll

Áramótaheitin mín fyrir árið 2006 voru þessi (feitletruð þau sem ég klúðraði):

Árið 2006 ætlaði ég að verða betri manneskja, stunda ræktina betur, læra meira, lesa meira, fremja tónverk, fremja gjörning, fremja list, fá mér kærustu, minnka hrokann, skapa, skrifa lengri bloggfærslur, kynnast fólki, kynnast betur því fólki sem ég þekki, eyða meiri tíma með fjölskyldunni, ferðast eitthvað (þó ekki sé nema innanlands) og verða svo að sjálfsögðu alloft sósaður, með kostulegum afleiðingum. Þetta afrekaði ég á eftirfarandi hátt:


Janúar

Ég byrjaði árið á ofurölvun, ofáti og almennri vanlíðan eins og flest önnur ár. Við tók hressari tíð því fljótlega tók ég til starfa sem forfallakennari í Hjallaskóla í Kópavogi og Landakotsskóla (gamla skólanum mínum) stuttu seinna. Þetta var áhugaverð reynsla, en ég held að kennsla á grunnskólastigi sé ekki mín sterkasta hlið.
...
Náttúruverndartónleikarnir voru góðir þrátt fyrir skort á Nick Cave.
...
Lét plata mig út í að starfa með Röskvu undir lok mánaðarins og taka 4. sætið á framboðslistanum til Stúdentaráðs. Að öðru ólöstuðu var best við þetta allt saman að kynnast frábæru fólki.


Febrúar

Kosningarnar fóru ágætlega þó að aðeins hefði munað þremur atkvæðum að ég kæmist ekki inn í Stúdentaráð. Við tóku samningaviðræður sem enduðu með sögulegu samstarfi Röskvu og Vöku og skipt var í nefndir samkvæmt hinu glæsilega Steindórsskjali. Ég tók sæti sem formaður Jafnréttis- og öryggisnefndar SHÍ og lagði mikla vinnu í það starf það sem eftir var árs. Aðrir einbeittu sér frekar að paramyndun, en ég lét það bíða í tvo mánuði.

Mars
Tilkynnt var að herinn færi af landi brott. Það kætti mig.
...
MorfÍs lið MR stóð í ströngu í undirbúningi fyrir úrslitaviðureign við MH og átti þetta eftir að vera síðasta MorfÍs keppnin sem ég tók beinan þátt í. Keppnin vannst, fyrsti MorfÍs sigur MR í 18 ár, allir urðu glaðir og ölvaðir.

Apríl
Ástir tókust með okkur Helgu með tilheyrandi vídjóglápi, kökubakstri og almennum gay-leika. Hápunktur ársins.


Maí

Próf og almenn leiðindi, sem fór svo sem ágætlega hjá mér. Ég vann mína seinustu vakt í Þjóðleikhúsinu og undirbjó mig fyrir sumarið.

Júní
Hóf störf hjá Fréttablaðinu. Ný tilfinning, að hlakka til að mæta til vinnu, kom mér í opna skjöldu. Klúðraði myndatexta á forsíðu, þekkti ekki muninn á lax og urriða, en það er nokkurn veginn eina klúðrið allan minn feril.
...
Reykjavík Trópík heppnaðis ágætlega, þ.e.a.s. fyrir þá sem ekki báru fjárhagslega ábyrgð. Mikið stuð að spila kubb og drekka bjór heila helgi.

Júlí
Vinnan gekk sinn vanagang, en í lok mánaðarins héldum við Helga austur að skoða svæðið sem nú gengur undir nafninu Hálslón. Í leiðinni stoppuðum við á Borgarfirði eystri til að sjá tónleika Belle & Sebastian og Emilíönu Torrini. Þeir voru þeir fyrstu í langri tónleikahrinu á árinu.
...
Röskva kláraði að blindraletursmerkja allar helstu byggingar Háskólans á einni góðri kvöldstund.

Ágúst
Um miðjan ágúst hélt Ferðafélagið Þreytti, Sveitti og Svangi í fylgd með Dagnýju og Stíg til Belgíu, þar sem Pukkelpop tónleikahátíðin fór fram. Radiohead og Daft Punk tónleikarnir stóðu upp úr á hreint frábærri hátíð, þ.e.a.s. fyrir utan alla fullu unglingana og slælega hreinlætisaðstöðu. Nokkrum dögum eyddi Ferðafélagið svo í London þar sem farið var fyrirvaralaust á Rolling Stones tónleika á Twickenham leikvanginum. Þar kynntumst við einnig múraranum Terry, sem var ferðarinnar virði út af fyrir sig.

September
Skólinn hófst á ný, mikið að gera í Röskvu og Stúdentablaðinu. Vinnan hélt áfram, en nú um helgar og í íhlaupum. Jafnframt kíkti ég á tónleika Nick Cave í Höllinni, sem þó stóðust ekki samanburð við tónleika hans á Broadway fyrir nokkrum árum.
...
Við Rúnar stóðum fyrir stuttmyndakeppninni Ljósvakaljóð í samvinnu við Pennann, Reykjavíkurborg og RIFF. Fyrir keppnina var haldið námskeið með þekktum kvikmyndagerðarmönnum, þeim Ragnari Bragasyni, Degi Kára og Skúla Malmquist. Námskeiðið og keppnin heppnuðust með ágætum og við munum endurtaka leikinn með haustinu.

Október
Október var viðburðaríkur mánuður sem hófst að venju á afmælinu mínu. Stuttu síðar fórum við Rúnar og Finnur á árlegan Hereford málsverð okkar, rifumst um pólitík og vorum almennt ölvaðir.
...
Daft Punk komu til landsins og ég var fenginn til að taka viðtal við þá fyrir Fréttablaðið. Klárlega hápunktur ferilsins hingað til að spjalla við goðin grímulaus um heima og geima.
...
Röskva kom því í gegn að Stúdentaráð stæði fyrir Meðmælum og þann 12. október flykktust háskólanemar og aðrir niður á Austurvöll til að láta skoðanir sínar í ljós. Daginn eftir var aðalkvöld Októberfest þar sem ég afgreiddi bjór og þeytti skífum til skiptis (les: gerði playlista í iTunes).

Nóvember
Ritgerðir og misskemmtilegt stúss í Röskvu. Voru svo ekki Sufjan Stevens tónleikar?

Desember
Prófin gengu ágætlega og eftir þau tók við stíf vinna á blaðinu. Í þetta skiptið var ég í innblaðinu að skrifa um menningu, fólk og slúður. Ágætis tilbreyting þó að slúðurhlutinn hafi kannski verið lítið spennandi.

Á næsta ári ætla ég að vinna meira, stunda ræktina betur, læra meira, lesa meira, eyða meiri tíma með fjölskyldunni, minnka hrokann, hætta að drekka kók (nema í þynnku), vera minna gay, ferðast eitthvað og verða svo að sjálfsögðu alloft sósaður, með kostulegum afleiðingum. Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.