sunnudagur, desember 31, 2006

Kryddsíld

Eru einhver rök fyrir því að stjórnarandstöðuflokkarnir ættu að koma sér saman um forsætisráðherraefni fimm mánuðum fyrir kosningar? Væri ekki mun eðlilegra að leyfa kjósendum sjálfum að ákveða það, til dæmis með því að kjósa þann stjórnarandstöðuflokk sem þeir vilja helst sjá leiða ríkisstjórn?